Innskráningar kubbur

Auglýsing

Tenglar

Gagnasafn

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

WE WILL ROCK YOU

16. maí 2007 klukkan 16:24

Næstu sýningar verða 24. maí og 25. maí !



Nemendur og kennarar í Tónlistarskóla FÍH settu upp söngleikinn We Will Rock You eftir Queen og Ben Elton síðasta febrúar við svo góðar undirtektir að ákveðið hefur verið að hafa 2 aukasýningar fimmtudaginn 24. maí kl. 20.00 og föstudaginn 25. maí kl. 18.00

Söngleikurinn á að gerast árið 3000 þar sem öll tónlist er bönnuð og fjallar um að finna tónlistina að nýju. Öll helstu lög Queen eru þarna í nýjum búningi.

Hljómsveit og kór samanstendur af kennurum og nemendum. Hljómsveitar- og kórstjóri er Vignir Stefánsson. En hann hefur spilað mikið úti meðal annars í söngleiknum Chicago, í X-factor hérna heima og í Footloose. Listrænir stjórnendur og raddþjálfarar eru söngkonurnar Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir og Kristjana Stefánsdóttir.

Hér er á ferðinni frábær sýning sem að enginn Queen-aðdáandi
eða tónlistarunnandi má láta fram hjá sér fara !
Thelma Hafţórsdóttir

Skrifa athugasemd